Reiðhjólaverzlunin Berlin hefur flutt yfir á Háaleitisbraut 12 hjá Atlantsolíu áður Olís bensínstöð.
Síðustu vikur höfum við verið að undirbúa húsnæðið okkar og þann 14.nóvermber opnuðum við á nýjum stað. Þessi staðsetning er ekki langt frá Ármúlanum. Það tekur um mínútu að labba á milli stað. Meira segja þá sérðu nýju staðsetningu okkar frá Ármúla 4.
Það er okkar von að nýja húsnæðið eigi eftir að verða samgöngustöð hjólafólks í framtíðinni. Við erum með gott plan fyrir utan sem býður upp á ýmsa möguleika fyrir okkur. Bílastæði eru við húsnæðið. Aðgengi er gott, inni er bjart og notalegt. Hjólin okkar njóta sýn og hægt er að fara framhjá og skoða hjólin í gegnum gluggann eftir lokun.
Hægt er að kaupa hressingu í vökvaformi hjá okkur frá Ölgerðinni. Hvort sem þú ert að byrja eða enda gönguna eða hjólatúrinn nú eða langar í eitthvað að drekka eftir að hafa tekið bensín/olíu á bílinn hjá Atlantsolíu fyrir framan hjá okkur.
Opnunartími er mán-fös frá 11-18 og lau frá 11-16.